Videos, News, Articles and Happiness
Posts tagged yfir
Á Sprengisandi (Ríðum, ríðum rekum yfir sandinn)
May 28th
Á Sprengisandi performed by Islandica Text Grímur Thomsen Composer Sigvaldi Kaldalóns Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, rennur sól á bak við Arnarfell. Hér á reiki’ er margur óhreinn andinn úr því fer að skyggja á jökulsvell. :,:Drottinn leiði drösulinn minn, drjúgur verður síðasti áfanginn.:,: Þei þei, þei þei. Þaut í holti tófa, þurran vill hún blóði væta góm, eða líka einhver var að hóa undarlega digrum karlaróm. :,:Útilegumenn í Ódáðahraun eru kannski’ að smala fé á laun.:,: Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn, rökkrið er að síga’ á Herðubreið. Álfadrotting er að beisla gandinn, ekki’ er gott að verða’ á hennar leið. :,:Vænsta klárinn vildi’ ég gefa til að vera kominn ofan í Kiðagil.:,: Sigvaldi Kaldalóns,Sigfús Einarsson / Grímur Thomsen www.skolavefurinn.is